5.9.2007 | 21:28
Playmó
Ég stóð við Playmobil rekkann í Hagkaupum um daginn og var að reyna að velja afmælisgjöf með Sólveigu Höllu. Þá rak ég augun í playmó pípulagningarmann á milli rómversks hermanns og mótorhjólatöffara. Sýndist ég líka sjá grillandi fjölskylduföður í hillunni fyrir ofan. Framleiðendur playmó gleyma svo sannarlega ekki hversdagshetjunni en það eru kannski smáatriðin sem heilla mest, eins og góðum Þjóðverjum sæmir. Þannig er hann með drullusokkinn í hendinni við vaskinn en best er að þegar maður beygir kallinn fram grillir í örlitla rassaskoru.
Annars er ég algerlega á þeirri skoðun að playmó sé besta dót sem krakkar geta leikið sér með. Ég hef verið aðdáandi í 30 ár og gekk meira að segja svo langt að heimsækja playmógarð i Þýskalandi fyrir nokkrum árum. Hver man t.d. ekki eftir þessum makindalegu hetjum villta vestursins frá því um miðjan áttunda áratuginn? Ég er því algerlega á móti því að Sólveig Halla fari að leika sér með barbídúkkur sem líta ekki út eins og gleðikonur, heldur eins og mellur. En svo er að sjá hversu lengi sú mótspyrna endist.
Athugasemdir
Þjóðverjar er snillingar!!! Erum einmitt að spá hvort við verðum ekki að drífa okkur í Playmógarðinn í haust svo við missum ekki út þetta ár, erum búin að fara á hverju ári síðan við fórum með ykkur 2004. Nú er Örkin hans Nóa komin!
Kristin (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 16:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.