Treyja vikunnar

Danmörk 1984-1985:

5bc6_1_b

Fyrsta treyjan sem er tekin fyrir í hinum uþb vikulega treyjuþætti síðunnar er danska treyjan frá EM 1984. Þessi treyja er ásamt tívolí treyjunni frá 1986 holdgervingur danska landsliðsins á þessum árum. Laudrup, Elkjær, Lerby, Simonsen, J. Olsen og M. Olsen, og kannski sá allra flottasti Ivan Nielsen, áttu allir sínar bestu stundir í treyjunni og ég er ekki frá því að hún sé flottari en tívolí treyjan sem er, þrátt fyrir klassíkina, ekki beint fagurfræðilegt veisluborð. Þessi er ekki með jafn tilþrifamiklu mynstri og svo verður að gefa hummel mönnum prik fyrir hummel borðann niður með síðunni og á ermunum (only in the land of Arne Jakobsen!!). Maður getur rétt ímyndað sér stemmninguna heima í stofu í Óðinsvéum 1985 í þessari treyju og með gömlu góðu klapphúfuna á hausnum. Og svona rétt til að fullkomna andrúmsloftið teygir fjölskyldufaðirinn sig í bjórhaldarahúfu með röri. Eðal eighties.

Danska landsliðið á auðvitað bara að spila í hummel eins og sést kannski best á eftirfarandi myndbandi sem er úr leik Dana og Sovétmanna 1985.

http://hummel.dk/Company/About/Milestones/1981-1990/1985.aspx


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu ekki að gleyma ákveðnum J. Mölby í upptalningunni?

Ég man eftir þessum stórkostlega leik eins og hann hefði verið spilaður í gær. Ég var staddur í Köben þegar hann fór fram og var þetta í fyrsta skipti sem ég hafði séð fólk fara í skrúðgöngu á leiðinni á fótboltaleik. Mér fannst þetta alveg magnað fyrirbæri en því miður komst ég ekki á völlinn heldur horfði á leikinn á stóru tjaldi í fællesherberginu á Öresunds Kollegiet. Var gríðarlega sáttur við leikinn og hreifst sérstaklega af Laudrup. Lenti svo í hálfgerðu rifrildi við einhvern danskan pilt sem var þarna eitthvað að þvælast fyrir utan eftir leikinn, hann spurði mig hver hefði verið bestur í leiknum og ég sagði að Laudrup hefði verið bestur. Hann tók það ekki í mál og heimtaði að ég viðurkenndi að Elkjær hefði borið höfuð og herðar yfir aðra leikmenn á vellinum. Ég neitaði því og úr varð smá rifrildi, en ekki mikið sem betur fer. Fyrir hann, því annars hefði ég rústað honum.

Treyjan er ótrúlega flott, flottari en HM 86 treyjan en sú treyja er bara svo stórt hlaðborð af minningum að hún er mér ofar í huga.

Kjartan (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband