Man U2

Vinur minn hringdi brjálaður í mig og kvartaði undan því að verið væri að gera lítið úr Guns´n´roses á síðunni. Bætti við að það vantaði bara U2 á listann og þá væri ég búinn að opinbera apaköttinn í sjálfum mér. Mér til varnar vil ég segja að U2 sleppur alveg, Bono og félagar hafa gert margt gott í gegnum tíðina þó ég slefi ekki yfir hverju lagi. En Guns´n´roses eru bara leiðinlegir.

Þetta minnti mig á frábæra grein eftir Hallgrím Helgason, sem birtist í DV fyrir nokkrum árum. Þar fullyrti hann að frjálslyndi væri orðið svo mikið að gera mætti grín að öllu; forseta Íslands, Guði, Jesús, minnihlutahópum og öryrkjum. Þrátt fyrir þetta væri tvennt í þessu þjóðfélagi sem ekki mætti gera grín að, annars vegar Manchester United og hins vegar U2. Rökstuddi hann þetta með dæmisögu þar sem hann sat í litlu plássi úti á landi og horfði á evrópuleik með Man Utd.  Þrekvaxnir togarjaxlar sátu allt í kringum hann í Manchester peysum og létu brandarana fljúga meðan á leiknum stóð. Snerust þeir oftar en ekki um ofangreind brandaraefni. Þá ákveður Hallgrímur að leggja sitt af mörkum og segir: "Hvernig er það með Cole og Yorke, eru þeir ekki hommar!?". Þá sló þögn á mannskapinn og Hallgrími mættu þvílík drápsaugnaráð, sem gáfu greinilega til kynna að hans nærveru væri ekki óskað frekar.

En hvernig er það, ég heyrði að Voronin og Torres væru e-ð að digga. Ég vissi reyndar alltað að Torres spilaði í hinu liðinu en Voronin kemur mér á óvart.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

U2 er glötuð hljómsveit.  Guns'n'Roses eru miklu betri.  Skil ekki þessa fordóma gagnvart þeim.

Lára (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 12:58

2 Smámynd: Jón Agnar Ólason

Ferlega ertu eitthvað klikkaður, Eiki.

Ég segi bara eins og hver annar togarabolti; á ég að fokkin' drepa þig? 

Jón Agnar Ólason, 31.8.2007 kl. 14:21

3 identicon

Grunaði þig ekki að Voronin spilaði með hinu liðinu? Ertu blindur? Ef eitthvað er öruggt í henni veröld þá er það að ljóst hár og tagl, þriggja daga skegg og aðdáun á fötum úr gallaefni ber klárlega vott um að viðkomandi sé í HLH-flokknum. Spurðu bara Spánverjana vini þína. Þeir eru allir gay as christmas, camper than a row of tents, svo notað sé algengt orðfæri hýrra.

Kjartan (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 18:21

4 identicon

Til að leggja áherslu á mál mitt:

http://images.icnetwork.co.uk/upl/icliverpool/jul2007/5/8/905C4B41-A064-B6B2-5CF710EDEE7D8106.jpg

Kjartan (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 18:26

5 Smámynd: EG

Helv.. bull er í þér Kjartan. Þú getur allt eins sagt að Þorgímur Þráinsson eigi allt plötusafnið hennar Judy Garland.

EG, 31.8.2007 kl. 18:40

6 identicon

Er ekki hægt að eiga eitt samtal við þig án þess að þú minnist á Þorgrím Þráinsson, Eiríkur?

Kjartan (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 19:42

7 Smámynd: Hannes Heimir Friðbjörnsson

Þá veit ég hvernig samkynhneigðir rífast! SVONA!!

Hannes Heimir Friðbjörnsson, 31.8.2007 kl. 20:23

8 Smámynd: EG

Hvað gerir Torres eftir markið? Hann er bara með hugann við einn mann.

http://www.megavideo.com/?v=J1W6KZYW

EG, 1.9.2007 kl. 16:37

9 identicon

Ef það að meika sweet love hjálpar þeim félögum að skora fleiri mörk þá óska ég þeim alls hins besta. "Pork away pal, f... him blue!"

Úr hvaða mynd?

Kjartan (IP-tala skráð) 1.9.2007 kl. 21:02

10 identicon

Þoli hvoruga, Guns eða U2. Kann mun betur við kvikmyndasmekkinn, Fish called Wanda ,,f... her blue".

Stefán (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband