Derrick

Ég nenni ekki að blogga við fréttir og set því inn frétt af mbl orðrétt hér inn. Þetta er ískyggilega líkt ca. 75 % af öllum byrjunaratriðum í Derrick:

"Staðhæft er í þýskum fjölmiðlum að austurríski hægrimaðurinn Jörg Haider, hafi verið á leið heim frá bar sem fyrst og fremst er sóttur er af samkynhneigðum, er hann lét lífið í bílslysi í síðustu viku. Mun Haider bæði hafa verið á ofsahraða og ölvaður er slysið varð. Þetta kemur fram á fréttavef Ha’aretz.

Samkvæmt heimildum þýska blaðsins Bild, hafði Haider óvænt komið í opnunarveislu nýs  tímarits í fylgd ungrar stúlku fyrr um kvöldið. Þar ræddi hann m.a. við blaðamann og lýsti því fyrir honum hversu hrifinn hann væri af ítölskum vínum.

Á heimleiðinni er hann sagður hafa komið við á barnum Stadtkraeme en þaðan sást hann fara einn síns liðs um klukkan eitt að nóttu. Um hálftíma síðar var hann látinn."

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband